Reykjavík · Síðan 1961
Húsfélagið
HÁTÚN6
Hátún 6 — teiknuð mynd
EST. 1961
★ ★ ★ VELKOMIN ★ ★ ★

Heimili í hjarta Reykjavíkur frá 1961

Á þessari síðu finnur þú húsreglur, sögu hússins, leiðbeiningar fyrir íbúa og allt sem þú þarft að vita um daglegan rekstur Hátúni 6.

1961
Byggt
9
Hæðir
70
Íbúðir
65
Ára gamalt
Aðalfundur: Aðalfundur 2026 hefur ekki enn verið boðaður og dagsetning liggur ekki fyrir. Fundurinn verður boðaður með lögbundnum fyrirvara í tölvupósti, í Facebook-hópnum og hér á síðunni.
Nýjustu tilkynningar
12.10.26
Lyftan skoðuð af KONE, skipt um hurðapumpur á 2. og 3. hæð
06.26
Ný neyðarlýsing sett upp í sameign
04.26
Gólf í kjallara við þvottahús brotið upp og steypt á ný
01.26
Gísli Már Finnsson tók við sem umsjónarmaður hússins
Í vinnslu hjá stjórn
Tillaga að fallegri sameign: hlýrri litir, betri lýsing og samræmdar merkingar.
Skoða tillöguna
Saga og staðreyndir

Um Hátún 6

Saga Hátúns 6

Hátún 6 er fjölbýlishús í Túnunum í Reykjavík með sögu sem nær aftur til upphafs sjöunda áratugarins. Húsið er skráð byggt árið 1961, en elstu uppdrættir sem fundist hafa eru frá árinu 1958 og tengjast Kjartani Sveinssyni, byggingatæknifræðingi sem kom að hönnun fjölda fjölbýlishúsa á Íslandi. Húsið byggðist upp í áföngum og var upphaflega 50 íbúða fjölbýlishús en nú eru 70 íbúðir í húsinu.

Húsið stendur á rúmgóðri lóð, um 4.170 fermetrum, og ber mörg einkenni þeirrar íbúðaruppbyggingar sem mótaði Reykjavík á sjöunda áratugnum.

Árið 2004 bættist nýr kafli við sögu hússins þegar samþykkt var sjö hæða viðbygging við norðurhlið þess. Viðbyggingin bætti 20 íbúðum við húsið og breytti ásýnd þess á afgerandi hátt. Síðan þá hafa ýmsar breytingar verið gerðar, meðal annars á kjallara, efstu hæðum, svölum og anddyri.

Í dag sameinar Hátún 6 sögu eldri fjölbýlishúsabyggðar í Reykjavík og nýrri uppbyggingu frá upphafi 21. aldar. Húsið er þannig lifandi dæmi um hvernig borgin hefur þróast, stækkað og endurnýjast í gegnum áratugina.

Hátún 6
Húsið í dag · Hátún 6 · Reykjavík
Hátún 6 sögulegt
Söguleg mynd · Heimild Timarit.is
1961
Byggingarár
9
Hæðir
70
Íbúðir
1
Lyfta
Áhugaverðir punktar um húsið
1961

Rætur til ársins 1961

Hátún 6 er skráð byggt árið 1961. Elstu teikningar sem fundist hafa eru þó frá árinu 1958, sem sýnir að undirbúningur og hönnun hússins hófst nokkrum árum áður en húsið reis.

KS

Kjartan Sveinsson

Elstu uppdrættir hússins eru skráðir á Kjartan Sveinsson, byggingatæknifræðing og einn afkastamesta hönnuð fjölbýlishúsa á Íslandi á síðari hluta 20. aldar.

1964

Byggt í áföngum

Húsið byggðist upp í áföngum frá 1961. Samþykktir uppdrættir frá 1964 sýna m.a. hærri hluta hússins, útlit, snið og grunnmyndir efri hæða.

50

Upphaflega 50 íbúðir

Eldra húsið var 50 íbúða fjölbýlishús — gott dæmi um þá miklu uppbyggingu fjölbýlishúsa sem átti sér stað í Reykjavík á sjöunda áratugnum.

4170

Rúmgóð lóð

Lóð hússins er um 4.170 m². Eitt af því sem einkennir mörg eldri fjölbýlishús í Túnunum: skipulagt með meira rými en algengt er í nýrri þéttari byggð.

2004

Viðbygging

Stærsti kaflinn í nýrri sögu er viðbyggingin við norðurhliðina, samþykkt 2004 — sjö hæða steinsteypt viðbygging með 20 íbúðum sem markaði verulega breytingu á ásýnd hússins.

20

20 nýjar íbúðir

Fyrstu umsóknir má rekja til 2002–2003. Upphaflega var rætt um stærri viðbyggingu, en endanleg samþykkt 2004 var fyrir sjö hæðum og 20 íbúðum.

2005

Kjallari og breytingar

Árið 2005 var samþykkt að hafa kjallara undir viðbyggingunni. Sama ár voru samþykktar breytingar tengdar geymslum, hjóla- og vagnageymslu og innra skipulagi.

2007

Efstu hæðir

Á árunum 2005–2007 voru samþykktar breytingar á efstu hæðum — stækkun íbúða á 9. hæð, breytingar á svölum og leyfi fyrir heitum pottum og lokuðum eldstæðum.

2017

Endurbætt andyri

Árið 2017 var samþykkt breyting á anddyri hússins — sýnir að húsið heldur áfram að þróast og aðlagast þörfum íbúa.

Í dag

70 íbúðir í Hátúni 6

Núverandi íbúðafjöldi er samsettur þannig:

Eldra fjölbýlishúsið
50 íbúðir
Viðbygging samþykkt 2004
+20 íbúðir
Hjóla- og vagnageymslu breytt í íbúð (2005)
+1 íbúð
Samtals
70 íbúðir
Heimildir

Heimildir um sögu hússins eru meðal annars sóttar í Aðaluppdráttasafn Reykjavíkur, gögn byggingarfulltrúa, fasteignaupplýsingar og skipulagsgögn Reykjavíkurborgar. Þar má finna uppdrætti og samþykktir frá árunum 1958, 1964, 1984, 2004, 2005, 2007 og 2017.

Tillaga stjórnar · drög til umræðu

Fallegri og hlýrri sameign

Stigagangurinn var málaður haustið 2025: blár að neðan og hvítur að ofan. Nokkrir íbúar hafa nefnt að bláinn sé í dekkra lagi. Blái liturinn verður ekki málaður yfir strax, en tillagan hér miðar að því að gera heildina bjartari og hlýrri með því sem bætist við: hurðum, lyftuvegg, gólfi, lýsingu og merkingum. Þrjár leiðir eru settar fram til umræðu, engin ákvörðun hefur verið tekin.

4 4-A 401402403404
Skissa af stigapalli eins og hann er: blár neðri hluti veggja og hvítur efri hluti. Hurð og póstkassar sýndir ljósir með messingmerkingum, lyftuveggur í áherslulit.
Það sem heldur sér

Blámi

#7B8FA2

Neðri hluti veggja í stigagangi, málaður 2025. Heldur sér að sinni. Sýnishornið er nálgun. Þegar málað verður næst má skoða léttari tón af sama bláa, sjá neðst.

Mjöll

#F8F6F1

Efri hluti veggja og loft, hvítt eins og nú. Hlýhvítt frekar en skjannahvítt lyftir bláa litnum og gerir ganginn bjartari.

Messing

#C8A66A

Númer á hurðum og póstkössum, handföng og skilti. Eitt letur og ein stærð alls staðar, sama hvaða leið er valin.

Þrjár leiðir fyrir hurðir, lyftuvegg og gólf
Hurðir og karmarLyftuveggur og anddyriGólf og sökklar

1 · Sandur og leir

Hlýjasta leiðin. Ljósar sandlitar hurðir mýkja bláa vegginn, leirrauður lyftuveggur gefur hlýju og gólfið helst hlýgrátt. Hentar ef markmiðið er að ganginum líði eins og heimili frekar en stofnun.

Hurðir og karmarLyftuveggur og anddyriGólf og sökklar

2 · Himinn og hvítt

Ferskasta leiðin. Hurðir í ljósum himinbláum tón sem lýsir upp dökka bláann í stað þess að keppa við hann, lyftuveggur í sama bláa og veggirnir en í fullri hæð, og ljósgrátt gólf. Heildin verður létt og samstæð.

Hurðir og karmarLyftuveggur og anddyriGólf og sökklar

3 · Rjómi og hunang

Hressasta leiðin. Rjómahvítar hurðir og einn hunangsgulur áhersluveggur við lyftuna. Gult og blátt lyfta hvort öðru og gangurinn verður bjartari án þess að verða skær. Gólf hlýgrátt.

Anddyrið: veggurinn við póstkassana

Veggurinn á móti póstkössunum, þar sem gatið var lokað, er stærsta tækifærið í anddyrinu. Hér eru sex hugmyndir til umræðu: flísar í tón við gólfið eða viðarklæðning, ljós eða dökk, aðeins á gatið eða á allan vegginn. Myndirnar eru tölvugerðar til að sýna hugmyndina, ekki endanleg hönnun, og hverja þeirra má para við hvaða litaleið sem er hér að ofan.

1 · Flísar

Stórar mattar flísar í sömu tónum og gólfið. Samræmd heild, endingargott og auðvelt í þrifum.

2 · Ljós viður á gatið

Ljósar riflaðar eða spónlagðar viðarplötur aðeins þar sem gatið var. Hlýlegt og nútímalegt, fallegur kontrastur við dökku hurðina.

3 · Ljós viður á allan vegginn

Sama ljósa klæðning á allan vegginn, líka yfir hurðina. Rólegt heildaryfirbragð sem dregur athygli frá póstkössunum.

4 · Dökkur viður, hurðin falin

Viðarklæðning í sama lit og útihurðirnar, hurðin felld inn í fletina. Vandað útlit sem tengir vegginn við hurðirnar.

5 · Dökkur viður á bakvegg

Dökk klæðning aðeins á bakvegginn, vinstri veggurinn helst ljós. Rólegt og vandað, svæðið við póstkassana helst létt.

6 · Dökkur viður með lýsingu

Eins og leið 5, með innfelldum ljósum í lofti sem lýsa niður eftir klæðningunni. Skapar dýpt og hlýju, ekki síst á kvöldin.

Allar leiðirnar bíða þess að athugasemdir lokaúttektar við anddyrið (brunaþéttingar og hurð milli stigagangs og anddyris) séu kláraðar fyrst.

Þegar málað verður næst

Ef bláinn þykir enn of dökkur má færa neðri hluta veggjanna í léttari tón af sama lit, til dæmis Himin, og halda hvítu að ofan. Þá þarf engu öðru að breyta, hurðir og merkingar passa áfram.

Lýsing
Hlý hvít lýsing (2700–3000 K) í stað kaldra pera, hreyfiskynjarar sem kveikja um leið og gengið er inn, bjartara við póstkassa og á stigapöllum. Neyðarlýsingin er þegar komin.
Merkingar
Samræmd númer á öllum íbúðahurðum, nafnaspjöld á póstkössum með sama letri, hæðarnúmer við lyftu á hverri hæð og skýrt húsnúmer á báðum inngöngum.
Röðin
  1. Anddyri og stigagangur blettaðir og 1. hæðin máluð aftur, mögulega í ljósari lit
  2. Dúkur í lyftu og gólf í stigagangi í skoðun
  3. Merkingar á póstkössum, hurðum og húsi
  4. Lýsing yfirfarin og bætt þar sem vantar
  5. Hurðir, lyftuhurðir og póstkassar málaðir samkvæmt þeirri leið sem valin verður

Segðu þína skoðun

Sendu stjórn línu í gegnum Samband-síðuna eða í Facebook-hópnum. Tillagan verður lögð fram með kostnaðarmati á næsta aðalfundi og eigendur taka ákvörðun þar.

Tilkynning til hússtjórnar

Reglur og samskipti

Húsreglur

Þessar reglur eru samþykktar af íbúum og stjórn til að tryggja að allir geti notið heimilis síns í friði og öryggi.

1

Kyrrðartími

Almennur kyrrðartími er frá kl. 23:00 til 07:00 virka daga og frá kl. 00:00 til 08:00 um helgar. Forðumst háværa tónlist og hávaðasamar framkvæmdir á þessum tímum.

2

Sameign

Engin húsgögn, hjól eða rusl í andyri, á göngum eða í stigum — öryggi og flóttaleiðir verða að vera frjálsar.

3

Reykingar

Reykingar eru bannaðar í allri sameign hússins — andyri, stigagangi, þvottahúsi og geymslum.

4

Sorphirða

Sorphirðuhúsið er vestanmegin við húsið. Vandið flokkunina í almennt sorp, lífrænt, pappa og plast.

5

Þvottahús

Þvottavélar eru greiðsluskyldar. Fjarlægið ykkar þvott strax og þvotti og þurrkun er lokið.

6

Geymslur

Merkið með íbúðarnúmeri, geymið ekki eldfim efni og haldið geymslugöngum frjálsum.

7

Bílastæði

Sérstök bílastæði eru fyrir hleðslu rafmagnsbíla. Leggið ekki í þau nema þið séuð að hlaða.

8

Gestir

Hver íbúi ber ábyrgð á sínum gestum. Tilkynnið nágranna fyrirfram um stærri samkomur.

9

Brunavarnir

Flóttaleiðir verða ávallt að vera frjálsar. Reykskynjarar í íbúðum eru á ábyrgð íbúa.

10

Öryggismyndavélar

Öryggismyndavélar eru í sameign í þágu öryggis. Upptökum er aðeins skoðað ef tilefni er til.

Leiðbeiningar fyrir íbúa

Hvað geri ég ef…

Smelltu á aðstöðu sem á við til að fá skýrar leiðbeiningar.

Lyftan bilar
  1. Hringdu beint í þjónustuaðila lyftunnar — KONE: sími 588-1213 eða sendu tölvupóst á bilanatilkynning@kone.com (allan sólarhringinn).
  2. Láttu stjórn vita með tölvupósti á stjorn@hatun6.is svo við getum fylgst með málinu.
  3. Ef einhver er fastur í lyftunni — hringdu í 112 strax.
Tjón á íbúðinni minni
  1. Tryggingafélagið þitt — hafðu samband strax. Húsfélagið tryggir bara húsið sjálft.
  2. Ef tjónið hefur áhrif á sameign — láttu stjórn vita á stjorn@hatun6.is.
  3. Stoppið orsökina — lokið fyrir vatn, hringið í 112 við bruna.
  4. Takið myndir og geymið kvittanir.
Greiðslur á húsgjöldum
  1. Húsgjöldin eru innheimt mánaðarlega með kröfu í heimabanka eigenda. Gjalddagi er 5. hvers mánaðar.
  2. Vandræði með greiðslu? Hafið samband við stjórn á stjorn@hatun6.is.
  3. Sjá nánar á síðunni Fjármál.
Týndi lykli
  1. Hafið samband við stjórn á stjorn@hatun6.is til að panta nýjan lykil.
  2. Kostnaður vegna nýrra lykla er á ábyrgð íbúa.
Mikill hávaði frá nágranna
  1. Talaðu fyrst við nágrannann — oftast er hávaðinn óviljandi.
  2. Hafðu aðeins samband við stjórn á stjorn@hatun6.is ef ástandið er viðvarandi og láta þarf leigusala eða eiganda íbúðarinnar vita.
  3. Ef um alvarlegt ónæði er að ræða má hringja í lögreglu í 112.
Flutningur inn eða út
  1. Vinsamlegast gangið vel um og takið tillit til annarra íbúa við notkun lyftunnar við flutninga.
  2. Forðist flutninga á kyrrðartíma.
  3. Skiljið ekkert eftir í sameign — hvorki húsgögn, umbúðir né annað.
Framkvæmdir í íbúðinni minni
  1. Tilkynnið nágrönnum fyrirfram.
  2. Hávaðasama vinnu innan 08:00–20:00 virka daga.
  3. Ef snertir burðarvegg eða sameign — fáið samþykki stjórnar.
Þvottavél í þvottahúsi er biluð
  1. Látið þjónustuaðila þvottavélanna vita. Nánari upplýsingar og símanúmer eru á vegg í þvottahúsinu.
Rafmagn fer af eða ljós í sameign virka ekki
  1. Athugið fyrst öryggi í eigin íbúð.
  2. Ef rafmagn er af í hverfinu — sjá veitur.is eða 5142222.
  3. Ef ljós í sameign — látið stjórn vita.
Neyðartilvik (eldur, slys, alvarlegur leki)
  1. HRINGIÐ Í 112 STRAX.
  2. Komið ykkur og nágrönnum í öryggi.
  3. Ef öruggt — lokið fyrir vatn, gas eða rafmagn.
  4. Látið stjórn vita eftir á.
Fundir og fundargerðir

Fundir húsfélagsins

2026
Dagsetning óákveðin
NÆSTI AÐALFUNDUR

Aðalfundur 2026

Aðalfundur 2026 hefur ekki enn verið boðaður og dagsetning liggur ekki fyrir. Hann verður boðaður með lögbundnum fyrirvara í tölvupósti, í Facebook-hópnum og hér á síðunni. Á dagskrá verða meðal annars ársreikningur 2025, kosning stjórnar og ákvörðun húsgjalda.

Fundargerðir
26.06.25
Aðalfundur 2025 — fundargerð
↓ PDF
12.04.22
Aðalfundur 2022 — fundargerð (fæst hjá stjórn)
27.09.21
Aðalfundur 2021 — fundargerð (fæst hjá stjórn)
Rekstur og greiðslur

Fjármál húsfélagsins

Yfirlit yfir rekstur, húsgjöld og fjárhagsstöðu húsfélagsins.

Hvað er innifalið í húsgjöldum?

Hússjóður og viðhald
Hiti sem og rafmagn í sameign
Lyfta og þjónusta
Þrif og umsjón sameignar
Húseigandatrygging og bókhald

Greiðsluupplýsingar

Innheimta: Krafa er send í heimabanka eigenda mánaðarlega. Gjalddagi er 5. hvers mánaðar.

Vandræði? Hafið samband við stjórn á stjorn@hatun6.is.

Ársreikningar og fjárhagsáætlanir

Ársreikningar eru aðgengilegir á Skjalasíðunni og samþykktir á aðalfundi árlega.

Ákvarðanir síðasta aðalfundar

Á aðalfundi 26. júní 2025 var samþykkt að húsgjöld héldust óbreytt fram að næsta aðalfundi. Fjórðungur húsgjalda (25%) rennur í framkvæmdasjóð.

Ársreikningar 2023 og 2024, með áritun skoðunarmanns, voru samþykktir á sama fundi og eru aðgengilegir í skjalasafninu.

Sorphirða og þrif

Sorphirða og flokkun

Sorphirðuhúsið er vestanmegin við húsið. Lykill að sorphirðuhúsinu fæst hjá hússtjórn. Í Hátúni 6 búa íbúar af mörgum þjóðernum og menningarheimum — og við viljum að allir kunni að flokka rétt. Hér eru sex flokkar í lit Reykjavíkurborgar.

Sorphirðuhúsið vestanmegin við Hátún 6
Mynd af sorphirðuhúsinu kemur hér
Vista mynd í möppuna sem heitir sorphus.jpg
Sorphirðuhúsið · Vestanmegin við Hátún 6 · Lykill fæst hjá hússtjórn
SORPHIRÐUDAGATAL
Smelltu hér til að fletta upp næsta sorphirðudegi á vef Reykjavíkurborgar
Almennt sorp - grá tunna

Almennt sorp

Sorp sem ekki flokkast annarsstaðar. Lokið pokum vel.

Lífrænt - brún tunna

Lífrænn úrgangur

Matarafgangar, hýði, kaffikorgur. Notum bréfpoka, ekki plast.

Pappír - blá tunna

Pappi og pappír

Brotið saman og slétt. Pizzakassar með matarleifum fara í almennt.

Plast - gul tunna

Plastumbúðir

Skolaðar og hreinar.

Málmar - rauð tunna

Málmar

Niðursuðudósir, álpappír og málmlok. Skolað og hreint.

Gler - græn tunna

Gler

Glerkrukkur og glerflöskur. Skolað og hreint.

Endurvinnslustöð

Stærri hluti á endurvinnslustöð

Húsgögn, raftæki og byggingarefni eiga ekki heima við sorphúsið — farið með það sjálf á næstu endurvinnslustöð.

Aðvörun

Ef ekki rétt flokkað

Tunnurnar verða EKKI tæmdar. Húsvörður þarf þá að flokka handvirkt og panta aukatæmingu — sem skapar vinnu og kostnað fyrir okkur öll.

Þrifaáætlun sameignar

Sameign er þrifin þrisvar í viku af utanaðkomandi þrifaaðila.

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um tæmingu og sorphirðu má finna á vef Reykjavíkurborgar. Smelltu á tengilinn að ofan eða farðu á sorphirðudagatal Reykjavíkur.

Sækja sorphirðudagatal (PDF) QR-kóði á dagatal

Skjalasafn

Skjöl og eyðublöð

Hér eru opinber skjöl húsfélagsins: fundargerðir, ársreikningar og bréf til íbúa. Eldri fundargerðir og önnur gögn fást hjá stjórn.

Stjórn og hlutverk

Stjórn húsfélagsins

Stjórn er kjörin árlega á aðalfundi.

DP

Dögg Pálsdóttir

Formaður
stjorn@hatun6.is
RG

Rannveig Grétarsdóttir

Gjaldkeri
RK

Ragnheiður H Kristjánsdóttir

Ritari
GF

Gísli Már Finnsson

Húsvörður
Sér um daglegan rekstur og viðhald sameignar

Aðalfundir og kosning

Aðalfundur er haldinn árlega, að jafnaði í maí eða júní. Á aðalfundi er stjórn kjörin, ársreikningur samþykktur og húsgjöld ákveðin fyrir komandi ár.

Íbúar geta boðið sig fram með pósti á stjorn@hatun6.is.

Hafa samband

Sendu okkur línu

Spurning, ábending eða tilkynning — hafðu samband.

Tengiliðir

Stjórn
stjorn@hatun6.is
Facebook
Hátún 6, Reykjavík — húsfélag
Heimilisfang
Hátún 6, 105 Reykjavík
Neyðartilvik
112

Senda fyrirspurn

Hnappurinn opnar tölvupóstforritið þitt með skilaboðunum tilbúnum til stjórnar.

Persónuvernd

Persónuvernd

Húsfélagið Hátúni 6 vinnur aðeins þær persónuupplýsingar sem þarf til að reka húsfélagið: nöfn og netföng eigenda, íbúðarnúmer og greiðslusögu húsgjalda. Gögnin eru ekki afhent þriðja aðila nema lög krefjist.

Öryggismyndavélar eru í sameign hússins í þágu öryggis íbúa. Upptökur eru aðeins skoðaðar ef tilefni er til, til dæmis vegna innbrots eða tjóns, og þeim er eytt reglulega. Vöktunin fer fram í samræmi við lög um persónuvernd nr. 90/2018 og reglur Persónuverndar um rafræna vöktun.

Þessi vefsíða notar hvorki vefkökur til að rekja notendur né söfnunartól. Vefurinn man aðeins valið tungumál í vafranum þínum.

Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á stjorn@hatun6.is.